Lumar þú á góðri hugmynd fyrir hverfið þitt? Opnað hefur verið fyrir innsetningu hugmynda frá borgarbúum á vefnum Betri Reykjavík. Vefurinn verður opinn til 7. nóvember. Í Safamýri hefur verið gert skemmtilegt leiksvæði á túni þar sem ekkert var fyrir. Það verkefni var kosið á þessu ári.
Í Safamýri er opið svæði bakvið verslunar- og þjónustukjarnann í Miðbæ. Þar hefur nú verið komið fyrir haganlega litlu torgi með borðbekkjum og skilti með lýsingum á nokkrum skemmtilegum hópleikjum, eins og stórfiskaleik, fallinni spýtu, krókódíl – krókódíl, einni krónu og fleiri. Verkefnið var kosið af íbúum í Háaleiti og Bústöðum og var frágangi lokið þar nú í haust. Lumar þú á fleiri frábærum hugmyndum fyrir hverfið þitt?