Stofnanir ársins verðlaunaðar

Skóli og frístund Mannréttindi

""

Árleg verðlaun stéttarfélaganna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (STRV), SFR og VR voru afhend við hátíðlega athöfn í Hörpunni í gær.

Könnunin nær til fjórðungs starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði eða um 52 þúsund manns. Hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sigraði Orkuveita Reykjavíkur í flokki stórra stofnana með meira en 50 starfsmenn. Meðal starfsstaða Reykjavíkurborgar voru tvær frístundasmiðstöðvar sem fengu tilnefningar, Kampur hlaut 4.sæti og Frostaskjól fékk 2. verðlaun í flokki stærri stofnanna, með 50 starfsmenn eða fleiri. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur varð í 5. sæti í hópi minni stofnanna. Húsaskóli fékk verðlaun fyrir að vera hástökkvari ársins og var í 6. sæti í hópi minni stofnanna.

Könnun sem þessi gefur góða mynd af starfsumhverfi og starfsánægju starfsmanna stofnunar/fyrirtækis. Starfsmenn geta notað niðurstöðurnar til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Einnig er hér ekki síður tækifæri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir stöðu starfsmannamála og hvar þeir standa í samanburði við aðra. Útnefningar ættu að vera starfsmönnum hvatning til að taka virkan þá í viðhorfskönnunum STRV og fá mynd af  sínu starfsumhverfi.  Hér að netan má sjá auglýsingu sem stéttarfélagið birti í dag en þar kemur fram hverjir voru fremstir meðal jafningja.