Á Menningarnótt býður Ljósmyndasafn Reykjavíkur upp á búningamyndatökuna Stefnumót við liðna tíð og sýningarnar Spegil lífsins með ljósmyndum Ragnars Axelssonar og Twosomes með verkum bandaríska ljósmyndarans Mark Chester.
Það verður skemmtileg dagskrá í boði á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á Menningarnótt.
Á viðburðinum Stefnumót við liðna tíð er boðið upp á búningamyndatöku á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Gestum og gangandi er boðið að klæða sig upp í búningum frá Borgarleikhúsinu og fá polaroid-mynd af sér á stefnumóti við liðna tíð.
Spegill lífsins
Á sýningunni Spegill lífsins gefur að líta úrval úr þekktustu myndröðum Ragnars Axelssonar frá síðustu þremur áratugum; ekki síst af heimi og lífsbaráttu veiðimanna í Grænlandi, og bænda og sjómanna á Íslandi og í Færeyjum. Auk ljósmyndanna má sjá heimildarmyndina Andlit norðursins, sem fylgir Ragnari á Norðurslóðir að fanga samspil mannlífs og náttúru í hverfandi landslagi norðursins.
Twosomes
Á farandssýningunni Twosomes má sjá verk frá 40 ára ferli bandaríska fréttaljósmyndarans Mark Chester. Í ljósmyndunum gefur að líta manneskjur, borgarlandslög, náttúru og hluti, sem Chester hefur myndað á ferðum sínum um Evrópu, Asíu, Ástralíu, Norður- og Suður-Ameríku. Í myndaröðinni Twosomes er sjónum beint að tvennum í verkum Chester og samtal milli ólíkra myndefna, staða og tíma er dregið fram með framsetningu ljósmyndanna í pörum.
Dagskrá Menningarnætur er kl. 13 - 22 i Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð.