Stefna Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum er komin út. Með stefnunni markar Reykjavíkurborg leiðina 2013 – 2023 í þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum í Reykjavík.
Hún byggir á framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk. Með stefnunni verður gerð aðgerðaráætlun sem ætlað er að færa þjónustu Reykjavíkurborgar nær framtíðarsýninni ár hvert. Unnið verður í samræmi við þau lög og reglugerðir sem gilda um þjónustu borgarinnar og í samræmi við áherslur og áætlanir borgarinnar hverju sinni.
Stuðst er við 19. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um rétt fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu. Aðildarríkin viðurkenna jafnan rétt alls fatlaðs fólks til að lifa í samfélaginu og með sömu valkosti og aðrir og skulu ríkin gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir til þess greiða fyrir þessum rétti fatlaðs fólks og til fullrar þátttöku þess í samfélaginu án aðgreiningar, meðal annars með því að tryggja að:
- fatlað fólk hafi tækifæri til þess að velja sér búsetustað, hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að búa þar sem tiltekið búsetuform ríkir
- fatlað fólk hafi aðgang að margskonar félagsþjónustu, s.s. aðstoð inni á heimili, í búsetuúrræðum og öðrum stuðningi til samfélagsþátttöku, meðal annars persónulegan stuðning sem nauðsynlegur er til að geta lifað í samfélaginu án aðgreiningar og til að koma í veg fyrir einangrun þeirra og aðskilnað frá samfélaginu
- þjónusta á vegum samfélagsins og aðstaða fyrir almenning standi fötluðu fólki til boða til jafns við aðra og mæti þörfum þeirra
Aðalmarkmið stefnunnar er að fatlað fólk fái þjónustu á heimili sínu í samræmi við þarfir sínar og óskir. Þjónustan skal vera einstaklingsmiðuð, heildstæð og sveigjanleg. Henni er ætlað styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf fatlaðs fólks, á heimili og í tómstundum.