Reykjavíkurborg hefur gefið út stefnu í málefnum utangarðsfólks til ársins 2018. Megináherslur í stefnunni eru á forvarnir og viðbrögð við stöðunni í málaflokknum.
Samkvæmt rannsókn frá árinu 2012 féllu 179 einstaklingar, þar af þriðjungur konur, undir skilgreiningu um heimilisleysi. Þar kom einnig fram að helstu ástæður heimilisleysis má rekja til áfengis- og vímuefnavanda eða um 62% og hjá 31.3% var orsökin geðræn vandamál.
Megináherslur í stefnunni eru á forvarnir og viðbrögð við stöðunni í málaflokknum. Kortleggja þarf þarfir utangarðsfólks og greina þjónustuþarfir hópsins m.a. hvað varðar húsnæðisúrræði auk þess sem lögð er áhersla á samstarf með ríki og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Margir komu að gerð stefnunnar sem styðst við rannsóknir og umræðu við fulltrúa allra hlutaðeigandi samstarfsaðila í málaflokknum, s.s. fulltrúa Rauða krossins, velferðarráðuneytis, Lögreglunnar í Reykjavík, Hjálpræðishersins, Geðsviðs LSH, SÁÁ, Samhjálpar, Barnverndar Reykjavíkur, sérfræðinga og stjórnendur fjölmargra þjónustuúrræða á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og stjórnendur á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Stefna í málefnum utangarðsfólks 2014-2018