Spennistöðin opnar í dag

Skóli og frístund Menning og listir

""

Ný félags- og menningarmiðstöð var opnuð í Spennistöðinni í dag.

Mikið var um dýrðir í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla í dag þegar ný félags- og menningarmiðstöð var opnuð þar að viðstöddu fjölmenni. Nemendur í Austurbæjarskóla eru himinlifandi yfir því að hafa fengið Spennistöðina til afnota í frístundastarfinu og létu þeir ekki sitt eftir liggja þegar kom að opnunarhátíðinni. Kór og hljómsveit úr 5. bekk lék og söng undir stjórn Péturs Hafþórs tónlistarkennara og danshópur sýndi listir sínar.  

Dagur B. Eggertson borgarstjóri flutti ávarp og þakkaði öllum sem lagt höfðu hönd á plóg til að þessi langþráði draumur nemenda, starfsfólks og foreldra við Austurbæjarskóla rættist. Sérstaklega þakkaði hann Birgittu Báru Hassentein sem fór fremst í þeirri vinnu og leiddi saman nokkra lykilaðila; skólastjóra, íbúasamtök Miðborgar, foreldrafélagið og fulltrúa frístundamiðstöðvarinnar Kamps. Vilborg Dagbjartsdóttir skáldkona sem lengi starfaði við Austurbæjarskóla heiðraði samkomuna með nærveru sinni og las nokkur ljóð sem urðu til í skólanum og gamlir nemendur komu of sungu og léku á hljóðfæri. Að lokinni skemmtidagskrá bauð foreldrafélagið í Austurbæjarskóla upp á hamborgaraveislu. 

1. október s.l. var Spennistöðin við Austurbæjarskóla afhent skóla- og frístundasviði en hún verður félags- og menningarmiðstöð miðborgarinnar,auk þess sem hún verður nýtt sem fjölnota rými í skóla- og frístundastarfinu. Húsráð er ráðgefandi um reksturinn og skipuleggur notkun hússins þann tíma sem ekki er nýttur fyrir skólastarf og félagsmiðstöðvarstarf. Húsráðið er skipað fulltrúum þeirra sem komið hafa að uppbyggingu og mótun starfsemi í Spennistöðinni; kennara, nemenda og foreldrasamtaka Austurbæjarskóla, Kamps og Íbúasamtaka Miðborgar.