Rannsókn lögreglu vegna tilkynningar um að starfsfólk Sorphirðu Reykjavíkur hafi gert tilraun til innbrots í íbúðarhús miðvikudaginn 9. apríl hefur leitt í ljós að starfsfólkið var eingöngu að sinna starfi sínu.
Sorphirða Reykjavíkur leggur sig fram um að veita góða þjónustu. Starfsfólkið er auðþekkt í sjálflýsandi öryggisklæðnaði og hefur með verkum sínum öðlast traust borgarbúa.
Sorphirða Reykjavíkur harmar ónákvæmar fréttir og staðhæfingar á visi.is og í Fréttablaðinu um málið. Ekki var haft samband við viðkomandi starfsmenn eða lögreglu áður en fréttin birtist.
Fréttin og umræða í kjölfar hennar ollu starfsfólki sorphirðunnar verulegum óþægindum því vegið var að æru þess og starfsheiðri. Þar sem þeim ofbauð fréttaflutningurinn ákváð það að mótmæla kröftuglega fyrir utan höfuðstöðvar 365 sem rekur Vísi og Fréttablaðið í morgun. Í kjölfarið baðst fréttastjóri Vísis afsökunar.
Fulltrúar starfsfólks Sorphirðunnar fóru að eigin frumkvæði til lögreglunnar í morgun og gerðu grein fyrir málinu. Lögreglan hefur skoðað gögn málsins, rætt við alla málsaðila og lýst því yfir að hér hafi ekki verið neitt óeðlilegt á ferðinni heldur misskilningur.
Reykvíkingar geta hér eftir sem hingað til treyst Sorphirðu Reykjavíkur. Mikilvægt er að sýna öllum vinsemd og virðingu.