Sorphirða Reykjavíkur verður að störfum á aðfangadag til að bæta upp tafir vegna færðar og veðurs síðustu daga. Mikið magn úrgangs yfir aðventuna, jól og áramót gerir hirðu einnig erfiða.
Losa átti tunnur í Breiðholtinu á morgun, Þorláksmessu, en vegna tafa verður hreinsað í Laugarneshverfinu sem losa átti í dag. Reynt verður eftir fremsta megni að ljúka hirðu í Breiðholti fyrir jól en óljóst er hvort það náist. Sorphirða hefst aftur eftir jól laugardaginn 27. desember.
Íbúar eru hvattir til að setja allt tilfallandi umframsorp sem ekki rúmast í gráu tunnunni í sérmerkta poka sem hægt er að kaupa hjá N1 stöðvum í Reykjavík og í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Pokinn er eingöngu ætlaður undir blandaðan heimilisúrgang frá heimilum í Reykjavík og skal staðsetja hann við hlið tunnunnar.
Einnig er hægt að skila úrgangi á endurvinnslustöðvar SORPU bs. sem eru sex á höfðuborgarsvæðinu. Opið verður á endurvinnslustöðvum á Þorláksmessu frá kl. 12.30 til 19.30 nema á Breiðhellu en þar opnar kl. 8.00. Endurvinnslustöðvar verða aftur opnar eftir jól kl. 12 þann 27. desember. Benda má á að ávallt er hægt að skila pappírs- og plastefnum til endurvinnslu á 56 grenndarstöðvar í Reykjavík og í bláar tunnur og dregur það úr því magni sem annars færi í gráu tunnuna.
Skila má öllum gjafaumbúðum úr pappír á grenndar- og endurvinnslustöðvar og í bláu tunnuna, hvort sem þær eru litaðar eða ekki. Ganga þarf úr skugga um að þær séu sannarlega úr pappír en ekki plasti.