Í nýútkominni bók, Á sömu leið, er fjallað um hvernig skapa megi meiri samfellu í námi barna á skilum leikskólans og grunnskólans.
Í bókinni er greint er frá niðurstöðum samstarfsrannsóknar kennara í þremur leikskólum og þremur grunnskólum í Reykjavík á árunum 2009-2011 og rannsakenda og stúdenta við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Fjallað er um fræðilegan bakgrunn rannsóknarinnar, sjónarmið kennaranna sem tóku þátt í henni og hvernig hugmyndir þeirra og leiðir við að nota leik sem námsleið þróuðust meðan á rannsókninni stóð. Bókinni er ætluð kennaranemum, kennurum í leik- og grunnskólum, þeim sem móta stefnu í skólamálum og öðrum sem láta sig varða menntun ungra barna.
Bókin er gefin út af RannUng og Háskólaútgáfunni og eru Jóhanna Einarsdóttir og Bryndís Garðarsdóttir ritstjórar. Henni verður dreift til allra skólastjórnenda borgarinnar.