Söfnin lifna við á Safnanótt í kvöld

Mannlíf Menning og listir

""

Hin margrómaða Safnanótt hefst í kvöld, föstudaginn 7. febrúar klukkan 19:00 og stendur yfir til miðnættis. Á Safnanótt opna fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá sem ber yfirskriftina Magnað myrkur. 

Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið dagskrárinnar fram undir miðnætti sér að kostnaðarlausu. Sérstakur Safnanæturstrætó gengur frítt á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja söfnin á Safnanótt.

Á Safnanótt fer fram Safnanæturleikur og geta gestir tekið þátt með því að svara þremur laufléttum spurningum og safna þremur stimplum frá mismunandi söfnum sem þeir heimsækja. Heppnir Safnanæturgestir gætu unnið ferð til Denver í Colorado í Bandaríkjunum.

Á Vetrarhátíð lýsum við upp mesta skammdegið með skemmtilegum viðburðum og uppákomum, íbúum og gestum borgarinnar að kostnaðarlausu. Hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna taka þátt í að skapa einstaka stemningu, en ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi. Alls verða á hátíðinni 200 viðburðir af ýmsu tagi, stórir sem smáir, en hún stendur til 15. febrúar.

Það verður magnað myrkur á Safnanótt!