Smástjörnur, Stelpustuð og tónlist skógarins

Skóli og frístund Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri og Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi afhentu í dag hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu. Nýbreytni - og þróunarverkefni í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi fengu viðurkenningu auk tveggja samstarfsverkefna.  

Alls fengu níu verkefni og starfsstöðvar skóla- og frístundasviðs hvatningarverðlaun.



Leikskólar

Skína smástjörnur -  Þetta er samstarfsverkefni leikskólanna Björtuhlíðar, Hálsaskógar, Langholts og Laugasólar þar sem unnið er að því að móta og þróa gæðastarf með yngstu börnunum og gengið út frá því að börn séu getumikil og hæf til ákvarðanatöku í lífi sínu. Verkefnið er unnið í samstarfi við menntavísindasvið Háskóla Íslands sem veitt hefur faglega handleiðslu og ráðgjöf.



Sérkennsla í leikskólanum Ægisborg -  Leikskólinn fær hvatningarverðlaunin fyrir sérkennslu í leikskólanum  og móttöku barna með sérþarfir. Markmið með sérkennslunni er að taka vel á móti öllum börnum og uppfylla þarfir hvers barns. Hvert barna hefur sinn þjálfa sem hefur aðalumsjón með málefnum þess og ber ábyrgð á sérkennslu þess en þjálfarnir vinna einnig mikið saman.



Leikskólinn Garðaborg fékk hvatningarverðlaun fyrir fjögur verkefni:

• Ljóðabókina; Nú er hann beinagrind upp í himninum

• Lýðræði í Garðaborg

• Velkominn bókina

• Verkefnið; Stuðningur við pólskumælandi börn í leikskólum Reykjavíkur

Grunnskólar

Tónlist skógarins og Ártúnsskóli – Ártúnsskóli fær hvatnignarverðlaunin fyrir þetta samþætta þróunarverkefni og þverfaglegt samvinnuverkefni í útinámi 3. og 6. bekkjar. Nemendur fá fræðslu um skógrækt og skógarafurðir og tengja það við smíðar, samvinnu, hljóðfæri, tónmennt og tónlist.



1, 2 og Fellaskóli - Þetta verkefni miðar að því að skapa samfelldan og heildstæðan skóladag fyrir nemendur í 1. og 2. bekk Fellaskóla. Áhersla er lögð á markvissa málörvun, aukin málþroska og lestur en einnig unnið með félagsfærni, samskipti og myndun jákvæðra tengsla í gegnum leik og frístundastarf.



Klúbbaskólinn í Norðlingaskóla -  Stuðningsúrræði við annað skólastarf í Norðlingaskóla fyrir nemendur á öllum aldri sem þurfa fjölbreytt nám, þ.e. verklegt nám, listtengt og hreyfitengt. Unnið er með list- og verkgreinar við alls kyns aðstæður, bæði úti og inni.

 

Frístundastarf

Stelpu stuð – Frístundaheimilið Eldflaugin fær hvatningarverðlaunin fyrir þetta frumkvöðlaverkefni sem miðar að því að styrkja sjálfsmynd stúlkna 1. og 2. bekk í Hlíðaskóla, stúlkna sem eru í kjörþögli og/eða með mikinn kvíða. Unnið er markvisst með æfingar sem auðvelda stelpum að sjá sig, leiðir til að auka sjálfstraust og mynda öryggi til að ræða líðan sína. Með þessu móti er reynt að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að draga úr áhættuhegðun.

Árangursrík samskipti – Félagsmiðstöðin Fjörgyn fær hvatninginarverðlaun fyrir þetta verkefni þar sem unglingum er boðið upp á fræðslu um árangursrík samskipti, fyrirlestur og verkefni. Markmið fræðslunnar var að vekja unglinga til vitundar um mikilvægi þess að eiga góð og árangursrík samskipti, kenna þeim aðferðir sem hægt er að nota til að ná árangri í samskiptum og áhersla lögð á hversu mikil áhrif árangursrík samskipti hafa á bæði sjálfstraust og sjálfsmynd einstaklinga.

„Sérðu ekki að við erum líka unglingar“ -  Félagsmiðstöðin Askja fær viðurkenningu fyrir þetta verkefni þar sem markmiðið er að sýna fram á að fatlaðir unglingar eru ekkert öðru vísi en ófatlaðir og hafa sömu áhugamál og væntingar. Verkefnið hlaut styrk frá Evrópu unga fólksins og verður til sýnis í Sjóminjasafninu nú á vormánuðum 2014

Sérstaka viðurkenningu fengu

Starfsnám unglinga á frístundaheimili - Vættaskóli, félagsmiðstöðin Dregyn, frístundaheimilin Brosbær og Hvergiland.

Lýðræðisverkefni Frostaskjóls og Vesturbæjarskóla.