Sleipnir lifnar við!

Skóli og frístund Menning og listir

""

Sleipnir, hinn áttfætti hestur Óðins, er sérstakur vinur Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur og allra barna. Hann getur flogið heima á milli og hefur á þessu ferðalagi sínu lent í margskonar ævintýrum.

Sleipnir er reynslubolti þegar kemur að því að lenda í ævintýrum og finnst þau lífsnauðsynleg hverju barni. Hann vill leyfa þeim að njóta töfranna sem búa í bókum og upplifa skemmtileg ævintýri. Einkunnarorð Sleipnis eru „komdu með á hugarflug”.  Með þeim minnir hann okkur á að með því einu að lesa bók eða hlusta á sögu getum við ferðast um heima alla, brugðið okkur í allra kvikinda líki og skyggnst inn í hugarheima fólks á ólíkum stöðum og tímum. Við getum orðið geimfarar, ofurhetjur eða maurar, slegist við úlfa, klifið fjöll og kafað í undirdjúpin, möguleikarnir eru óþrjótandi og ekkert sem stoppar okkur nema eigið ímyndunarafl.

Nú er Sleipnir kominn á skeið og mætti ljóslifandi í Hörpu í tilefni opnunar Barnamenningarhátíðar í Reykjavík. Þórunn María Jónsdóttir búningahönnuður hefur gefið Sleipni líf með aðstoð Fablab og Verkstæðisins, en Sleipnir er fyrsti þrívíddarprentaði hesturinn sem við höfum séð hérlendis. Hann heilsaði börnunum við opnun hátíðarinnar og minnti á að allir geta verið ofurhetjur ef þeir leyfa sér ofurlítið hugarflug.

Barnamenningarhátíðin var formlega sett 29. apríl kl. 11.30 með opnunarhátíð í Hörpu þar sem allir fjórðu bekkingar í Reykjavík, 1.400 talsins, fluttu lagið 112 ásamt Friðriki Dór, Möggu Stínu og Dr Gunna, sem samdi lagið fyrir Neyðarlínuna og Barnamenningarhátíð.

Barnamenningarhátíð í Reykjavík er einn stærsti viðburður ársins sem haldinn er á vegum borgarinnar. Í ár er hún haldin í fjórða sinn og stendur yfir dagana 29. apríl til 4. maí.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar.

Bæklingur hátíðarinnar.