Ungmennaráðið í Laugardal og Háaleiti er að skipuleggja Ungmennahlaup þann 1. maí og er það liður í Barnamenningarhátíð.
Ungmennaráðið vill með þessum hætti skapa vettvang fyrir ungmenni til þess að taka þátt í hlaupi sem er ætlað öllum á aldrinum 13-18 ára og á sama tíma að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar.
Ungmennaráðið hvetur öll ungmenni á þessum aldri sem hafa áhuga á að taka þátt í hlaupinu að mæta fyrir utan félagsheimili Þróttar í Laugardalnum fimmtudaginn 1. maí, klukkan 13:00.
Hlaupið verður 5 km og svo eru allir keppendur hvattir til að skella sér í sund í Laugardalslaug eftir hlaupið.
Skráning: (nafn, aldur og símanúmer) á ungmennahlaup2014@gmail.com.