Skráning hafin í sumarstarf barna og unglinga

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Í sumar verður fjölbreytt afþreying og fræðsla í boði fyrir börn og unglinga í borginni. Skráning í sumarstarfið er hafin. 

Á sumarvef ÍTR eru upplýsingar um það sumarstarf sem er í boði fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára, s.s. sumarfrístund, siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið, leikjanámskeið og margt fleira. Skráning í sumarstarfið fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.

Skráning í sumarfrístund, sumarstarf frístundaheimilanna, fyrir börn sem eru að ljúka 1.-4. bekk grunnskóla hefst einnig í dag í gegnum Rafræna Reykjavík, svo og skráning á siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst sama dag.

Frístundamiðstöðvarnar í borginni munu auk sumarfrístundar bjóða upp á smiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk og félagsmiðstöðvarnar verða með sumaropnun fyrir unglinga sem voru í 8.-10. bekk í vetur. Skráning í smiðjur fyrir 10-12 ára börn hefst 15. maí og fer hún einnig fram á Rafrænni Reykjavík.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar borgarinnar og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf Reykjavíkurborgar í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og símavers Reykjavíkurborgar (sími: 4 11 11 11) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu. Foreldrum er bent á að skrá börn sín tímanlega því námskeið geta fyllst fljótt. 

Skráning í sumarstarf íþrótta og æskulýðsfélaga

Upplýsingar um skráningu í sumarstarf íþrótta- og æskulýðsfélaganna eru á sumarvefnum og á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.

Meira um sumarstarf fyrir börn og unglinga.