"Skólin er skemtilegur og kanski ef hann veiri kanski aðeims stittri"

Skóli og frístund Mannlíf

""

Börn og fullorðnir tóku þátt í skemmtilegri könnun á nýafstaðinni sýningu um Skóla- og frístundaborgina Reykjavík sem haldin var í Ráðhúsinu.  Alls svöruðu 120 krakkar og 180 fullorðnir spurningunum.

Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að 85% krakkanna töldu sig oftast hafa nóg að gera á sumrin og 68% sögðu að það væri oftast gaman í frímínútum í skólanum. Þá töldu 58% krakkanna að páskafríið væri hæfilega langt – 8% fannst það of langt en 34% fannst það of stutt. Í opnum spurningum kom m.a. fram að allir ættu að vera vinir í skólanum, það þyrfti að vera meiri frístund, að nemendur ættu að fá að hafa síma í skólanum, sumir kennarar væru of strangir og að það væri oftast „rosalega skemmtilegt“ í skólanum.

Í niðurstöðum fullorðna fólksins kom fram að 92% þeirra töldu þörf fyrir félagsmiðstöðvastarf fyrir 16-18 ára í hverfum borgarinnar, 29% höfðu skoðað foreldravef SFS og 56% töldu skorta fjölbreytni í sumarstarfi fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Um 44% vildu miða við að börn kæmust í leikskóla við eins árs aldur, 13% vildu leikskóladvöl fyrir yngri en eins árs en 43% vildu að börn kæmust í leikskóla 18 mánaða eða eldri. Í opnum svörum frá fullorðnum kom fram að leikgleði í leikskólum og frístundastarfi mætti smitast yfir í grunnskólann, frístundastarf væri of dýrt fyrir foreldra, bjóða ætti upp á frístundamöguleika fyrir foreldra og börn saman á sumrin, tengja betur saman skóla og frístundir og leggja enn meiri áherslu á sköpun í skóla- og frístundastarfinu.