Skipskaðaganga í Viðey fellur niður!

Mannlíf Menning og listir

""

Því miður verður að aflýsa fyrirhugaðri skipskaðagöngu þriðjudagskvöldið 24. júní. Stígarnir á vesturhluta Viðeyjar eru orðnir of blautir til að hægt sé að ganga á þeim eins og nú viðrar. 

Til stóð að Guðrún Einarsdóttir, dóttir Einars Sigurðssonar sem var skipstjóri á Aðalbjörgu RE 5, myndi fara í göngu um eyna og rifja upp björgunarafrek föður síns þegar kanadíski tundurspillirinn Skeena strandaði rétt fyrir utan Viðey. Einar átti stóran þátt í því að 198 skipverjum var bjargað þá stormasömu og myrku nótt.

Guðrún man vel eftir atvikinu og kemur síðar til Viðeyjar og deilir með okkur sögum frá föður hennar.