Skákmeistarar í Rimaskóla leika á tveimur Norðurlandamótum

Skóli og frístund

""

Skákmeistararnir í Rimaskóla áunnu sér rétt til að taka þátt í báðum Norðurlandamótunum í skák; grunnskóla- og barnaskólasveita. Eldri sveitin lenti í öðru sæti þegar keppt var í Stokkhólmi á dögunum með 14 vinninga af 20 mögulegum og sú yngri lenti í fjórða sæti þegar keppt var á Selfossi. 

Rimaskóli hefur hampað Norðurlandameistaratitli síðustu tvö árin og annað sætið var því ásættanlegur árangur þar sem tveir keppendur af fjórum voru nýir. Oliver Aron Jóhannesson, sem var að tefla í síðasta sinn fyrir Rimaskóla, stóð sig með miklum ágætum og vann allar skákirnar sínar gegn erfiðum andstæðingum.

Yngri sveitin tók þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita á Hótel Selfossi og náði 4. sætinu, hlaut 10 vinninga af 20 mögulegum. Í þessari sveit voru allir liðsmenn að taka þátt í sínu fyrsta Norðurlandamóti nema skákdrottningin efnilega, Nansý Davíðsdóttir 7-EH, eina stúlkan á mótinu og náði hún bestum árangri allra á efsta borði.

Liðsstjóri beggja skáksveitanna á Norðurlandamótunum var Jón Trausti Harðarson, 17 ára og  fjórfaldur Norðurlandameistari með skáksveitum Rimaskóla. Skólinn hefur tekið þátt í 14 Norðurlandameistaramótum á sl. áratug og unnið Norðurlandameistaratitilinn alls sex sinnum.