Sjósund ekki ráðlegt í Nauthólsvík 11. - 14. febrúar

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur fólki frá því að synda í sjónum við Ylströndina í Nauthólsvík eða í Fossvogi dagana 11. - 14. febrúar vegna hugsanlegrar saurgerlamengunar. Ástæðan er reglubundið viðhald skólpdælustöðvarinnar við Faxaskjól. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur sjósundsfólki að fara ekki í sund í sjónum við Ylströndina í Nauthólsvík/Fossvogi dagana 11. - 14. febrúar. Vegna viðhalds í dælustöðinni við Faxaskjól verður skólpi dælt um yfirfallsrás við dælustöðina í Skeljanesi. Því er hætta á að saurgerlamengun í sjó verði yfir viðmiðunarmörkum meðan á viðgerð stendur og fyrst á eftir.

Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík vill af þessum sökum ráðleggja fólki frá því að synda í sjónum í Fossvogi dagana 11. - 14. febrúar.