Börn og starfsfólk í leikskólanum Sjónarhóli höfðu tvöfalda ástæðu til að halda hátíð þann 15. september, en þá varð skólinn fimmtán ára og fékk að auki alþjóðlega viðurkenningu fyrir umhverfisstarf.
Mikil gleði ríkti í leikskólanum þegar þeim stóra áfanga varð náð að geta dregið Grænfánann að húni, en unnið hefur verið að því síðastliðin tvö ár. Haldin var veglega veisla með Grænfána- og afmælisköku, fjöldasöng og hljómsveitarspili. Til hamingju Sjónarhóll!