Sjómannadeginum verður fagnað með viðeigandi hætti í VIðey sunnudaginn 1. júní. Dagskráin er sniðin að fjölskyldu og fólki og öllum þeim sem vilja njóta útiveru í fallegu umhverfi.
Siglt verður frá gömlu höfninni og frá Hörpu um hádegisbil.
Sigling frá Gömlu höfninni um Sundin og út í Viðey er afar viðeigandi skemmtun þegar hafinu og sjómennsku er fagnað. Slegið verður upp veislu með harmónikkuleik þar sem gestir geta lært að flaka fisk og keypt sér ljúffengt „fish and chips“ af veitingafólkinu í Viðeyjarstofu. Skemmtilegir sjómannadagsleikir verða í boði eins og reipitog og pokahlaup sem skátarnir Landnemar munu stýra.
Allir krakkar hafa gaman að því að leita að gersemum í fjörunni og þeim býðst háfar, fötur og balar undir það sem kemur upp úr krafsinu en það er ekki verra að koma með eigið fjörudót.
Í Viðeyjarstofu verður kraftmikið sjómannadagskaffi og góðar veitingar á boðstólum alla helgina. Auk djúpsteikta fisksins verður meðal annars hægt að gæða sér á ómótstæðilegum vöfflum með sultu og rjóma.
Viðey hefur sterka tengingu við sjómennsku enda var þar í byrjun síðustu aldar eitt besta hafnarsvæðið á sunnanverðum Faxaflóa. Enn má sjá minjar útgerðar Milljónafélagsins og Kárafélagsins á austurhluta eyjunnar auk þorpsins sem þar stóð. Við hvetjum fólk til þess að sigla út í Viðey, ganga um eyjuna og njóta útiverunnar í tilefni dagsins.
Viðeyjarferja siglir frá Ægisgarði við Gömlu höfnina í miðbæ Reykjavíkur kl. 11.50 og frá Hörpu kl. 12.00. Einnig eru fastar siglingar frá og að Skarfabakka í Sundahöfn á klukkustundar fresti frá kl. 10.15 til 17.15 og oftar ef þörf krefur.
Ferjutollur er 1.100 kr. fyrir fullorðna, 550 kr. fyrir börn 7–15 ára og frítt fyrir þau yngstu. Handhafar Menningarkortsins fá 10% afslátt af siglingu og veitingum og handhafar Gestakortsins sigla frítt.