Sighvatur og Surtla eru mætt

Skóli og frístund Mannlíf

""

Það var margt um manninn í Safnahúsinu (áður Þjóðmenningarhúsinu) klukkan 8.30 í morgun. Börn frá Lindarborg og Tjarnarborg voru þar saman komin ásamt fjölda tvíbura sem voru boðnir sérstaklega velkomnir þegar nýjasta jólavættin var afhjúpuð á Hverfisgötu í rökkrinu í morgun. Börnin biðu spennt eftir því að fá að vita hver væri nú að boða komu sína.

Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, sagði nokkur orð um helstu viðburði sem borgin stendur fyrir í Reykjavík í desember. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sem klæddur var jólapeysu með hreindýri á til stuðnings átaki Barnaheilla, fór aðeins yfir það að nú þegar megi sjá Grýlu, Leppalúða, Jólaköttinn, Rauðhöfða og nokkra jólasveina á ferli í borginni. Að þessu sinni væru það yngstu börn Grýlu tvíburarnir Sighvatur og Surtla sem væru komin til byggða. Í miðri ræðu var borgarstjóri truflaður af Leiðindaskjóðu, sem kom hlaupandi niður tröppurnar og faðmaði hann innilega.

Börnin voru sum hver heilluð og önnur eilítið hrædd, en tóku þó lagið með Leiðindaskjóðu sem hljóp um og hló ofsahlátri. Að loknum söngnum var farið út í sundið milli Safnahússins og Þjóðleikhússins þar sem Surtla og Sighvatur birtust allt í einu á gafli hússins, og stríddu hvort öðru, við mikla kátínu krakkanna.

Surtla og Sighvatur eru augasteinar jólasveinanna sem æfa sig allt árið á að gleðja þau og gefa þeim í skóinn. Þau geta því verið ansi heimtufrek og óstýrilát — og eiginlega bara óþolandi, einkum fyrir jólin. En sem betur fer eru þau næstum alltaf sofandi.

Þegar búið var að virða þau Surtlu og Sighvat  fyrir sér var öllum boðið inn aftur til að gæða sér á kakó og piparkökum. Tvíburar sem mættu á viðburðinn fengu smá glaðning, miðbæjarkortið, og allir fengu plakat með mynd af þeim Surtlu og Sighvati. 

Að venju verður boðið upp á spennandi ratleik fyrir alla fjölskylduna sem felst í að finna vættirnar og svara nokkrum einföldum spurningum um þær. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þá sem sigra í leiknum.