Sendiherra Póllands heimsækir mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar
Mannlíf Mannréttindi
Lech Mastalerz nýr sendiherra Póllands heimsótti mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í gær. Sendiráð Póllands var formlega opnað í apríl í fyrra til að efla vinsamleg samskipti milli landanna og veita pólskum fyrirtækjum og ríkisborgurum aðstoð og fyrirgreiðslu ef á þarf að halda.
Pólverjar eru 3% af íslensku þjóðinni og búa um 3000 í Reykjavík. Mannréttindaskrifstofa leggur áherslu á að eiga góða samvinnu við pólska samfélagið á Íslandi og því var ákveðið að bjóða pólska sendiherranum í heimsókn og kynna þá þjónustu sem veitt er á mannréttindaskrifstofunni og hjá Reykjavíkurborg.
Á mannréttindaskrifstofunni er starfandi pólskur ráðgjafi sem aðstoðar pólskumælandi íbúa við hin ýmsu mál sem koma upp í daglegu lífi og tengjast þjónustu Reykjavíkurborgar.
Á fundinum við sendiherrann var rætt um ýmis mál þar á meðal hvernig efla mætti þjónustuna og kynna hana enn frekar fyrir Pólverjum sem búa í borginni.