Seljaskóli fær Grænfánann í þriðja sinn

Umhverfi Skóli og frístund

""

Markvisst umhverfisstarf fer fram í Seljaskóla sem fékk á dögunum Grænfánann í þriðja sinn. 

Þetta er viðurkenning á þeirri vinnu sem nemendur og starfsfólk leggja af mörkum til að bæta og efla umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu. Fáninn er einnig veittur fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar.

Gerður Magnúsdóttir hjá Landvernd afhenti Seljaskóla Grænfánann við hátíðlega athöfn að viðstöddum öllum nemendum og starfsmönnum skólans.  Lúðraflokkur Seljaskóla flutti Grænfánamarsinn, skólastjóri flutti ávarp og skólasöngurinn var sunginn. Að því loknu var  gengið fylktu liði út á skólalóð og Grænfáninn dreginn að húni við mikinn fögnuð viðstaddra. Seljaskóli hefur tekið þátt í verkefninu Skólar á grænni grein frá árinu 2001.