Sauðburður er hafinn hjá Húsdýragarðsbændum í Laugardalnum en ærin Surtla bar síðastliðna nótt (aðfaranótt 2. maí) lambakóngi og lambadrottningu. Konunglegu viðurnefnin fá fyrstu lömbin að vori og virðast þau bera titlana vel enda stór og stæðileg.
Búast má við að aðrar ær garðsins fylgi nú ein af annarri og verður því nóg um að vera í fjárhúsinu á næstunni. Faðirinn er hrúturinn Grámann en hann lætur sér fátt um finnast um viðbótina í kindastíunni en er þeim mun duglegri að sinna gestunum og þiggja frá þeim vinalegar strokur og einstaka knús.
Huðnurnar hafa allar borið og kiðlingarnir duglegir að gera það sem þeir gera best sem er að hoppa og skoppa og bræða gesti garðsins með því einu að vera algjör krútt.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opin alla daga frá kl. 10 til 17 og um helgina (3. og 4. maí) verður opið í hringekju, lest, fallturni og ökuskóla auk þess sem blásið verður í Ærslabelginn ef ekki rignir.