Sáningardagur í Laugargarði

Betri hverfi Umhverfi

""

Sáningardagur í Laugargarði, í Laugardal, verður laugardaginn 14. júní. Dagskráin hefst um klukkan ellefu og stendur til fjögur. Á staðnum verður mold og fræ og eru íbúar hvattir til að koma og taka þátt enda tilvalin skemmtun fyrir alla aldurshópa.

MA nemar og BA nemar úr Listaháskóla Íslands og Landbúnaðarháskólanum ætla í sumar að setja upp og hafa umsjón með samfélagsreknum hverfisgarði, Laugargarði, í Laugardalnum. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og verða ýmsar uppákomur sem tengjast sjálfbærni, eins og bændamarkaður og skiptimarkaður hluti af starfsemi garðsins. Hægt er að skoða verkefnið nánar og fylgjast með á www.facebook.com/laugargardur

Garðurinn er staðsettur í Laugardalnum við hliðina á fjölskyldugarðinum. Ræktunarsvæði garðsins verður 200 m2 í upplyftum beðum og verður fyrsti sáningardagur á laugardaginn. Íbúar geta mætt og hjálpað til við að setja mold í beð og sá en fræ verða á staðnum fyrir þá sem vilja. Einnig getur fólk lagt til í verkefnið forsáðar plöntur og fræ.

Hugmyndin er að tengja hverfisgarðinn inn í aðra starfsemi í hverfinu, s.s. skólastarf, til þess að tryggja áframhaldandi sjálfbært rekstrarform og að þessi tilraunagarður öðlist þar með framhaldslíf í höndum hverfisbúa. Afrakstur sumarsins verður seldur á bændamarkaði og munu tekjur af honum fara í áframhaldandi uppvöxt garðsins.

Bændamarkaður Frú Lauga og Matarkista Reykjavíkur munu bjóða gestum upp á súpu.

Annar sáningardagur verður auglýstur síðar í sumar.

Kort sem sýnir svæðið sem um ræðir.