Samtökin '78 færa Borgarbókasafni Reykjavíkur bókagjöf

Mannlíf Menning og listir

""

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tók á móti höfðinglegri bókagjöf, fyrir hönd Borgarbókasafns, frá Samtökunum '78. Pálína Magnúsdóttir, borgarbókavörður, Hilmar Magnússon, formaður samtakanna og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri fluttu ávörp auk þess sem Auður Magndís Auðardóttir las ljóð.

23. september er Alþjóðadagur tvíkynhneigðra eða Bi Visibility Day og með því að afhenda bókagjöfina í dag vildu Samtökin '78 vekja athygli á málefnum tvíkynhneigðra, pankynhneigðra og fólks með „fljótandi“ kynhneigðir (e. fluid) og fagna hlutverki og hlutdeild þessa hóps í sögu og menningu hinsegin fólks. Gjöfin samanstendur af skáldsögum eða um 1.400 titlum sem voru í bókasafni Samtakanna á skrifstofunni við Laugaveg 3. Bækurnar eru að mestum hluta erlendar skáldsögur um líf og menningu hinsegin fólks.

Samtökin hafa rekið eigið bókasafn á grasrótargrunni frá árinu 1987. Í upphafi sóttu margir safnið í leit að fræðslu um málefni hinsegin fólks sem var í raun undir yfirborðinu lengi vel. Í gegnum árin hefur útlán á bókasafninu dregist saman í réttu hlutfalli við aukið framboð og aðgengi að bókum og tímaritum í gegnum netið.

Hilmar Magnússon, formaður samtakanna sagði við afhendingu bókagjafarinnar í dag að Samtökin '78 standi á tímamótum því nú á haustdögum flytji félagið í ný heimkynni að Suðurgötu 3 í Reykjavík. „Við vitum að bækurnar eru í góðum höndum hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur og ég er ekki í vafa um að þessi hinsegin bókagjöf mun vaxa og blómstra í hillum safnsins - okkur öllum til gagns og gleði.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri þakkaði fyrir höfðinglega gjöf og fyrir að treysta Borgarbókasafni fyrir þessum mikilvæga málaflokki sem mun festa Borgarbókasafn enn betur í sessi sem besta bókasafn landsins. Pálína Magnúsdóttir, borgarbókavörður tók í sama streng og sagði gjöfina vera kærkomna viðbót í safnið.