Samstarfsyfirlýsing grunnskólanna í Breiðholti

Skóli og frístund

""

Á dögunum undirrituðu skólastjórar grunnskólanna fimm í Breiðholti samstarfsyfirlýsingu, en löng hefð er fyrir faglegu samstarfi skólanna með það að markmiði að efla það á sem flestum sviðum.

Skólasamstarfið tekur til nemenda, námsumhverfis, mannauðs og grenndarsamfélags. 

Í Breiðholti er áralöng hefð fyrir góðu samstarfi milli skóla og stofnana og hefur það leitt til fjölmargra smærri og stærri verkefna. Skólarnir hafa t.d. haft sameiginlega símenntunardaga nokkrum sinnum yfir skólaárið til að byggja upp sameiginlegt lærdómssamfélag til hagsbóta fyrir nemendur.

Við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár voru skólarnir einnig samstíga með verkefninu A-A -(frá aðalnámskrá til athafna) sem unnið var undir leiðsögn Barkar Hansen prófessors. Afrakstur vinnunnar var að allir kennarar fengu góða kynningu á grunnþáttunum sex, greinasviðunum og námsmati. 



Í samstarfsyfirlýsingunni sem stjórnendur skólanna undirrituðu á dögunum er lýst yfir sameiginlegum markmiðum og vilja til áframhaldandi samstarfs. Að sögn Kristínar Jóhannesdóttur skólastjóra í Fellaskóla varð yfirlýsingin til einmitt til að innsigla gott samstarf og festa það formlega í sessi. "Það gagnast hverjum skóla fyrir sig og skólasamfélaginu í Breiðholti sem heild og ber því jákvæða viðhorfi sem ríkir til samstarfs glöggt vitni." 

Sjá samstarfsyfirlýsinguna.