Samspil – ókeypis íþróttaæfingar fyrir hressa krakka

Velferð Íþróttir og útivist

""

Ókeypis íþróttaæfingar verða í boði fyrir fyrir börn og unglinga í Efra-Breiðholti í sumar. Æfingarnar eru ætlaðar börnum í 3.-8. bekk grunnskóla. Æft verður á þriðjudögum og fimmtudögum á lóð Fellaskóla. 3.-5. bekkur æfir kl. 15:00-16:15 og 6.-8. bekkur æfir kl. 16.15 til 17.30. Íþróttagreinarnar sem verða teknar fyrir eru handbolti, körfubolti, frjálsar og fótbolti. Í lok æfinga er síðan farið í lífsleikniæfingar.

Æfingarnar eru haldnar á vegum verkefnis sem heitir SAMSPIL, en stjórnandi þess er Eva Dögg Guðmundsdóttir, cand.mag. í uppeldis- og kennslufræði og menningar- og innflytjendafræði. Eins og áður segir bera þátttakendur engan kostnað. Börn og unglingar sem hafa ekki tekið virkan þátt í íþróttastarfi eða vilja bara kynnast öðrum krökkum eru sérstaklega hvattir til að mæta og prófa að vera með. Verkefnið er styrkt af ÍTR og unnið í samvinnu við ÍR og Leikni, en þjálfarar á þeirra vegum annast æfingarnar.

Verkefnið hefst fimmtudaginn 12. júní og verður í gangi út júlímánuð.