Samningur við Skátasamband Reykjavíkur undirritaður

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri hefur undirritað samning fyrir hönd Reykjavíkurborgar um styrk til Skátasambands Reykjavíkur. Í samningum heita skátafélögin innan SSR að gera sem flestum ungmennum kleift að taka þátt í skátastarfi. 

Samningurinn er til tveggja ára og hljóðar styrkurinn upp á 47 milljónir króna.  Reykjavíkurborg hefur átt farsælt samstarf við Skátasambandið í gegnum árin og er markmið samningsins að efla skátastarfið og marka framtíðarstefnumótun milli samningsaðila.

Skátasamband Reykjavíkur er samtök átta skátafélaga í Reykjavík og hefur það meginhlutverk að efla kjarnastarfsemi skátafélags á sínu starfssvæði og vinna að því að styrkja fjárhagslegan grunn hvers félags. Þá hefur SSR einnig frumkvæði að sameiginlegum viðburðum og styður við nýsköpun í skátastarfi.

Skátastarfið byggir á þeim gildum sem felast í skátalögum og skátaheiti. Skátar fara í útilegur og ferðalög, þeir syngja og bregða á leik, spila tónlist og klífa fjöll, leika leikrit og sigla á kajökum, smíða, mála, klippa, tálga, dansa og byggja snjóhús – viðfangsefnin eru jafn fjölbreytt og hugurinn girnist.