Reykjavíkurborg og íbúar við Rituhóla hafa gert með sér samkomulag vegna eignatjóns borgarinnar á skógi fyrir neðan Rituhóla.
Eignartjónið átti sér stað 1. maí 2013 þegar íbúar felldu fjölda trjáa í skógi borgarinnar án heimildar í Elliðaárdal við Rituhóla.
Samkomulagið felur meðal annars í sér að íbúarnir greiða borginni skaðabætur, auk þess sem þeir taka að sér fegrun og hreinsun svæðisins og endurplöntun trjáa og hafa eftirlit með umgengni á svæðinu í samvinnu við borgarstarfsmenn.
Reykavíkurborg mun í kjölfar greiðslunnar afturkalla kæru vegna málsins sem lögð var fram hjá Lögreglustjóra Höfuðborgarsvæðisins og falla frá frekari bótakröfum vegna meintra eignaspjalla. Samkomulagið, sem gildir í þrjú ár, felur í sér að sátt hefur náðst milli íbúa við Rituhóla og Reykjavíkurborgar vegna eignaspjalla íbúanna á skógi í eigu borgarinnar.