Samkomulag um Reykjavíkurflugvöll virt í einu og öllu

Stjórnsýsla Skipulagsmál

""

Af gefnu tilefni vegna frétta um Reykjavíkurflugvöll undanfarnar vikur vill Reykjavíkurborg taka eftirfarandi fram:

Reykjavíkurborg hefur virt samkomulag við innanríkisráðuneytið og Icelandair um innanlandsflug frá 25. október 2013 í einu og öllu.

Nýtt deiliskipulag fyrir Reykjavíkurflugvöll er í fullu samræmi við samkomulagið og var raunar kveðið á um fjölmörg atriði þess í samkomulaginu, m.a. stækkun flugstjórnarmiðstöðvar, flugstöðvarinnar, niðurlagningu þriðju flugbrautarinnar  og fleira.  

Uppbyggingaráform Valsmanna á Hlíðarenda eru einnig í fullu samræmi við samkomulagið, þótt ekki sé kveðið sérstaklega á um þau í samkomulaginu.

Borgarráð hefur gert sérstaka bókun um að við mótun skipulags í Skerjafirði verði horft til niðurstöðu nefndar sem nú er að störfum undir forystu Rögnu Árnadóttur. 

Isavia hefur það verkefni með höndum að finna framtíðarstaðsetningu fyrir æfinga- og kennsluflug, en í samkomulaginu segir: „Óháð öðrum verkþáttum sem í samkomulaginu felast munu innanríkisráðuneytið og Isavia hafa forgöngu um að kennslu- og einkaflugi verði fundinn nýr staður í nágrenni borgarinnar í samræmi við áður gefin fyrirheit vegna endurbyggingar vallarins um síðustu aldamót og skal stefnt að því að framkvæmdir verði hafnar eins fljótt og verða má.“

 

Samkomulag um innanlandsflug.