Borgarráð hefur samþykkt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir að sambýli fyrir hreyfihamlaða einstaklinga rísi á lóðinni við Austurbrún 6. Um er að ræða lágreista 600 fermetra byggingu með sex litlum einstaklingsíbúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga.
Deiliskipulagið var auglýst frá 5. maí til 16. júní sl. Um er að ræða sex hundruð fermetra byggingu á lóðinni við Austurbrún 6 en þar er fyrir 13 hæða bygging með 71 íbúð.
Athugasemdir bárust frá íbúum í nærliggjandi húsum, þó ekki frá íbúum fjölbýlishússins að Austurbrún 6.
Megininntak athugasemdanna er að tillagan sé brot á aðalskipulagi og að svæðið sé fullbyggt og fastmótað, bílastæðavandamál muni aukast og verið sé að þrengja að byggð sem fyrir er, ganga á opið rými og græn svæði. Þá er því haldið fram að fyrirhugaðar byggingar muni rýra verðgildi eigna á svæðinu og takmarka útsýni.
Í svörum skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar við athugasemdunum kemur fram að tillagan sé í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag en í því er tilgreint að yfir 90% allra nýrra íbúða í Reykjavík til ársins 2030 muni rísa innan núverandi þéttbýlismarka ef áætlanir aðalskipulagsins ganga eftir.
Ekki er fallist á að sambýli fyrir fatlað fólk sé stofnun heldur er það skilgreint sem íbúðarhúsnæði.
Skipulagsfulltrúi hafnar því einnig að heildarmynd hverfisins muni skaðast með breytingunni enda sé nýbyggingin fyrirhuguð í jaðri byggðar á illa nýttum grasflötum.
Þá er ekki fallist á það sjónarmið að 5,5 metra há bygging skerði útsýni enda sé hún fyrirhuguð í 1 – 1.5 metra lægra landi en þau hús sem næst standa.
Þá er tilgreint að heildarfjöldi bílastæða á lóðinni muni aukast úr 44 í 49 en bætt er við sjö bílastæðum vegna sambýlisins. Þá verði töluvert eftir af lóðinni til að njóta útiveru.
Ekki liggur fyrir endanleg tillaga að byggingunni.