Rimaskóli vann Íslandsmót grunnskóla fjórða árið í röð

Skóli og frístund

""

Eina reykvíska skáksveitin á Íslandsmótinu kom úr Rimaskóla og fór með sigur af hólmi með 30,5 vinning af 32 mögulegum.  

Íslandsmót grunnskólasveita í skák , 1. - 10. bekkur,  var haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsýslu laugardaginn 5. apríl. Rimaskóli sendi eina sveit til keppni og var eini skólinn í Reykjavík sem tók þátt í mótinu. Skemmst er frá því að segja að skólinn vann Íslandsmótið fjórða árið í röð eftir  úrslitaviðureign við skáksveit Álfhólsskóla í Kópavogi 3,5 - 0,5 í síðustu umferð mótsins. Skólarnir tveir höfðu verið jafnir nánast alla keppnina og því þótti sigurinn sætur í lokaumferðinni.



Í skáksveit Rimaskóla eru bræðurnir Oliver Aron og Kristófer Jóel Jóhannessynir, Nansý Davíðdóttir og  Jóhann Arnar Finnsson. Þjálfari og liðsstjóri er stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson fyrrverandi nemandi skólans.

Skáksveit Rimaskóla hlaut 30,5 vinninga á Íslandsmótinu af 32 mögulegum. Skáksveitin öðlast þátttökurétt á Norðurlandamóti grunnskóla sem fram fer í Svíþjóð í haust. og fær þar tækifæri á að verja Norðurlandameistaratitil sinn. Skáksveit Rimaskóla vann fyrr í vetur bæði Reykjavíkurmót grunnskóla og Jólaskákmót Reykjavíkurskólasveita.