Reykjavíkurleikarnir verða settir í sjöunda sinn á morgun, föstudaginn 17. janúar. Í tilefni þess að skíði er ný keppnisgrein á leikunum fer opnunarhátíðin, RIGGAROBB, fram í Bláfjöllum og hefst hún kl. 16:00. Sýnt verður frá hátíðinni samdægurs á RÚV kl. 18:30.
Spennandi rail jam snjóbrettakeppni verður haldin ásamt því sem keppt verður í samhliða svigi með stökkpalli. Mun margt af besta bretta- og skíðafólki landsins taka þátt.
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum býður öllum þeim sem mæta fyrir kl. fimm frítt í lyfturnar allan daginn. Það er því um að gera að drífa sig á staðinn, slá tvær flugur í einu höggi og fylgjast með flottri keppni ásamt því að renna sér nokkrar góðar ferðir inn í helgina.
Rútuferðir hefjast snemma í tilefni dagsins og fer rúta kl. 14:30 frá KR. Sú rúta hefur viðkomu í Ármannsheimilinu, Víkinni og á Olís í Mjódd og er áætluð koma hennar í Bláfjöll kl. 15:30. Sama verð og venjulega er í rútuna, það er 1.500 kr. fram og til baka.
Mjólkursamsalan býður heita súkkulaðimjólk og plötusnúður fær alla til að dilla sér við góða tónlist. Það ætti því engum að verða kalt.