Með dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp 6. nóvember sl., var Reykjavíkurborg sýknuð af rúmlega 1,8 milljarða kröfu Kaupþings hf. ásamt dráttarvöxtum frá 18. nóvember 2008.
Þar með lauk sex ára ágreiningi Reykjavíkurborgar við Kaupþing hf. um slit og uppgjör á þremur gjaldmiðla- og vaxtaskiptasamningum sem Reykjavíkurborg gerði í tengslum við áhættustýringu Reykjavíkurborgar vegna erlendra lána í lánasafni Reykjavíkurborgar.
Dómur Hæstaréttar.