Reykjavíkurborg styrkir Skáksamband Íslands

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Jón Gnarr, borgarstjóri, og Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands undirrituðu í dag samning um stuðning við skáksambandið upp á 6,5 milljónir króna. Styrkurinn er veittur vegna 50 ára afmælis Reykjavíkurskákmótsins sem fram fer 4. til 12. mars næstkomandi.

 

Fyrsta Reykjavíkurskákmótið var haldið þann 14. janúar til 1. febrúar árið 1964 í Lídó og tóku 16 keppendur þátt í mótinu. Reykjavíkurborg hefur allar götur síðan styrkt Reykjavíkurskákmótið sem í dag er orðið eitt stærsta og virtasta alþjóðlega mót hvers árs í skákheiminum. Á síðasta ári tóku 230 keppendur frá  37  löndum þátt í mótinu.

Mótið verður haldið í Hörpu í mars á þessu ári og verður með veglegri hætti að þessu sinni í tilefni tímamótanna. Nú þegar hafa 170 manns skráð sig og búast skipuleggjendur jafnvel við fleiri keppendum í ár en í fyrra.

 Þá var einnig undirritað samkomulag um mót EM landsliða í skák sem haldið verður í Reykjavík árið 2015.

Reykjavíkurborg mun styrkja mótið með endurgjaldslausum afnotum af húsnæði Íþrótta- og sýningarhallarinnar í Laugardal og vegna hluta af búnaði skv. nánara samkomulagi á milli Skáksambands Íslands og íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar (ÍTR).  ÍTR mun fyrir hönd Reykjavíkurborgar hafa umsjón með þeim hluta samningsins.

Með undirritun samkomulags þessa er staðfestur gagnkvæmur skilningur og vilji aðila til þess að undirbúa og kynna mót EM landsliða í skák 2015 og Reykjavík sem best.  Til þess að tryggja tengsl milli Skáksambandsins og Reykjavíkurborgar verði komið á laggirnar samstarfsnefnd, skipuð þremur fulltrúum frá hvorum aðila.