Reykjavíkurborg styrkir björgunarsveitir í Reykjavík

Velferð Mannlíf

""

Jón Gnarr, borgarstjóri og fulltrúar björgunarsveita í Reykjavík undirrituðu í dag styrktarsamning. Björgunarsveitirnar sem um ræðir eru Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík og Hjálparsveit skáta í Reykjavík.

Samningurinn er til þriggja ára og mun Reykjavíkurborg styrkja björgunarsveitirnar um 10 milljónir árlega til að styðja við rekstur á samningstímanum. Samtals nemur styrk fjárhæðin 30 milljónum króna og er hún greidd óskipt til styrkþega og skulu þeir sjá um að skipta styrknum á milli sín skv. sérstöku samkomulagi þar um.

Björgunarsveitirnar hafa sérþjálfaðan mannskap í rústabjörgun, fjallabjörgun, köfun og fyrstu hjálp. Um er að ræða sjálfboðaliða sem eru þaulvanir að takast á við hvern þann vanda sem upp kann að koma

Jón Gnarr, borgarstjóri, sagði við undirritun samningsins í dag að það væri afar mikilvægt að styðja við bakið á björgunarsveitunum. Liðsmenn sveitanna séu boðnir og búnir að leggja sjálfan sig í hættu til þess að koma öðrum til bjargar og það væri bæði aðdáunarvert og þakkarvert.