Norrænu sveitarfélagasamböndin hafa fengið styrk frá Norrænu ráðherranefndinni til að vinna að jafnréttisverkefni meðal sveitarfélaga. Sveitarfélög sem eru í fararbroddi í jafnréttisstarfi munu taka þátt í verkefninu.
Verkefnið hefur tengsl við Evrópusáttmála um jafna stöðu karla og kvenna í sveitarfélögum og héruðum sem sex íslensk sveitarfélög hafa undirritað.
Meðal væntanlegra þátttakenda verða Århus og Roskilde í Danmörku, Kristiansand og Lillehammer í Noregi, Umeå og Malmö í Svíþjóð og Helsinki og Turku í Finnlandi. Reykjavíkurborg og Akureyri munu taka þátt frá Íslandi.
Markmið verkefnisins er að bera saman jafnréttisstefnur sveitarfélaganna, safna upplýsingum um fyrirmyndarverkefni sem geta nýst öðrum sveitarfélögum og mynda samstarfstengsl á milli landanna. Haldnar verða þrjár vinnustofur þar sem sveitarfélögin kynna jafnréttisstarf sitt og bera saman bækur sínar. Sú fyrsta verður haldin í Malmö 11. - 12. júní í tengslum við stóra norræna jafnréttisráðstefnu: Nordiskt Forum2014. Áherslan verður á samþættingarverkefni, af hverju eigi að beita samþættingu í starfsemi sveitarfélaga og hvernig sé hægt er að nota þá aðferðarfræði til að bæta þjónustu. Þessi mynd sem sænska sveitarfélagið hefur látið gera skýrir það reyndar betur en mörg orð.
Myndband sænska sveitarfélagasambandsins um samþættingu kynjasjónarmiða í starfsemi sveitarfélaga.