Borgarráð fékk í morgun kynningu frá fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar á kostnaði barnafjölskyldna við að búa í borginni. Þar kemur fram að ódýrast er fyrir barnafjölskyldur að búa í Reykjavík miðað við mismunandi fjölskyldustærðir, aðstæður þeirra og tekjur.
Í minnisblaði fjármálaskrifstofu er farið yfir helstu gjaldskrár Reykjavíkurborgar sem snúa að mismunandi stærðum barnafjölskyldna og þær bornar saman við gjaldskrár annarra sveitarfélaga.
Í kynningunni eru sýnd svokölluð fjölskyldudæmi, en í þeim eru reiknuð útgjöld ákveðinna fjölskyldustærða miðað við gildandi gjaldskrár borgarinnar og þau borin saman við útgjöld hjá öðrum sveitarfélögum. Þær forsendar sem gefnar eru í hverju dæmi eru fjölskyldustærð, tekjur, stærð húsnæðis, fjöldi barna og aldur þeirra.
Dæmin eru sex talsins og sýna samanburð á fjölskyldum með 1, 2 og 3 börn, þar sem foreldrar eru annars vegar í sambúð og hins vegar einstæðir.
Í dæmunum er miðað við fyrirliggjandi gjaldskrártillögur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015. Miðað er við holræsagjald ársins 2014, þar sem það gjald er lagt á og innheimt af Orkuveitu Reykjavíkur og gjaldskrár þeirra fyrir árið 2015 liggja ekki fyrir. Fyrir önnur sveitarfélög en Reykjavík er miðað við gjaldskrár ársins 2014, þar sem gjaldskrártillögur þeirra hafa ekki verið samþykktar af bæjarráðum og liggja ekki fyrir.
Þegar endanlegar gjaldskrár annara sveitarfélaga sem tiltekin eru í minnisblaðinu liggja fyrir, mun Reykjavíkurborg senda frá sér uppfærslu á fjölskyldudæmunum.