Reykjavík gegn heimilisofbeldi

Velferð Mannlíf

""

Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum 13. nóvember aðgerðir gegn heimilisofbeldi. Samþykktin felur í sér átak gegn heimilisofbeldi þar sem leitað verður eftir samstarfi við önnur sveitarfélög,  Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Lögregluskólann og grasrótar- og stuðningssamtök til að bæta þekkingarmiðlun og verklag í heimilisofbeldismálum.

Lögð var fram bókun um að Reykjavíkurborg myndi kanna og innleiða allar þær aðferðir sem stuðlað gætu að friðsælli borg og auknu öryggi borgarbúa.  Mannréttindaskrifstofa, velferðarsvið og Barnavernd Reykjavíkur lögðu grunn að verkefninu, m.a. með því að funda með flestum sem að málaflokknum koma og má þar nefna lögreglu, Kvennaathvarf,  Stígamót og Freyju Haraldsdóttur og Emblu Ágústsdóttur en þær vinna að Evrópurannsókn um ofbeldi gegn fötluðu fólki.

Heimilisofbeldi er alltof sjaldan tilkynnt til lögreglu og því hefur fagfólk sett saman aðgerðaráætlun til að draga úr því. Lögð er áhersla á að bæta verklag, samráð og fagþekkingu þeirra sem starfa með þolendum og gerendum. Bæta á alla upplýsingamiðlun og fræðslu um heimilisofbeldi og á þar sérstaklega að huga að margbreytileika í samfélaginu, m.a. með túlkaþjónustu fyrir innflytjendur og átaksverkefni sem lýtur að ofbeldi gegn fötluðu fólki.

Þverfaglegur stýrihópur mun leiða þetta verkefni auk þess sem verkefnastjóri verður ráðinn til að halda utan um verkefnið. Áætlað er að 50 milljónir fari í verkefnið.