Ragnhildur Ísaksdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar.
Ragnhildur hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá 2010, fyrstu tvö árin á ráðgjafadeild mannauðsskrifstofu sem verkefnisstjóri atvinnuátaks, en frá 2012 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra atvinnumáladeildar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Ragnhildur lauk BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2003, diplóma í opinberri stjórnsýslu árið 2006, og meistaranámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2012.
Ragnhildur þykir búa yfir leiðtogahæfni og hefur hún sýnt frumkvæði og metnað í störfum sínum. Þessir eiginleikar Ragnhildar hafa gagnast Reykjavíkurborg í virkniúrræðum fyrir atvinnuleitendur hjá borginni. Ráðgjöf Ragnhildar og gott starf sem deildarstjóri atvinnumáladeildar hefur skipt sköpun í þeim árangri sem borgin hefur náð í því að draga úr atvinnuleysi og auka virkni þeirra sem leita að vinnu.
Ragnhildur starfaði einnig hjá Sambandi íslenskra sparisjóða í fjögur ár, í fyrstu sem fræðslu- og markaðsfulltrúi og síðar sem sérfræðingur fræðslumála. Jafnframt vann hún um eins árs skeið á fjármálaskrifstofu Alþingis og hafði þar m.a. umsjón með starfsmannamálum.
Ragnhildur hefur víðtæka reynslu á sviði mannauðsmála og starfsmannamála innan opinberrar stjórnsýslu og hefur sterka faglega sýn á mannauðsmál og hugmyndaríki og metnað fyrir málaflokknum í heild sinni. Við óskum Ragnhildi til hamingju með nýja stöðu hjá Reykjavíkurborg.