Rafrænar hverfakosningar um ný framkvæmdaverkefni í hverfum Reykjavíkur hófust á miðnætti 11. mars. Opið verður fyrir atkvæðagreiðslu til miðnættis 18. mars.
Þetta er í þriðja sinn sem íbúum í Reykjavík gefst kostur á að kjósa um verkefni í hverfunum sínum í rafrænum kosningum með dulkóðuðum auðkennum. Kosningarnar eru með sama sniði og síðustu tvö ár. Farið er á vefslóðina http://kjosa.betrireykjavik.is. Í kosningunum núna er notast við nýja íslykilinn til auðkenningar eða rafræn skilríki. Sjá nánar um Íslykil,
Kosningarétt hafa allir sem voru orðnir 16 ára um síðustu áramót og eru niðurstöðurnar bindandi. Á síðustu tveimur árum hafa íbúar í Reykjavík kosið yfir 200 verkefni til framkvæmda í hverfum borgarinnar, sem Reykjavíkurborg hefur framkvæmt eða eru á undirbúningsstigi. Hefur Reykjavíkurborg varið 600 milljónum til þessara verkefna.
Í ár verður 300 milljónum varið til nýrra verkefna í hverfunum sem íbúar forgangsraða í kosningunum. Auglýst var eftir hugmyndum frá íbúum í nóvember á síðasta ári og bárust yfir 400 hugmyndir sem hverfisráð og fagteymi á vegum borgarinnar fóru yfir.
Reykjavíkurborg hvetur alla sem hafa kosningarétt að nýta sér atkvæðisrétt sinn og kynna sér verkefnin í sínum hverfum. Virkjum íbúalýðræðið!