Ráðstefnan Spirit of Humanity Forum - Mannleg grunngildi lögð til grundvallar í stjórnun og forystu.
Stjórnsýsla Mannlíf
Spirit of Humanity Forum, er nýr alþjóðlegur samstarfsvettvangur leiðtoga á sviði stjórnmála, viðskipta, menntunar, umhverfisverndar, vísinda, andlegra fræða o.fl., sem vilja skoða hvernig altæk mannleg gildi geta leitt til kerfisbreytinga innan samtaka, samfélaga og jafnvel þjóða. Efnt var til blaðamannafundar í Höfða í dag til að kynna ráðstefnuna.
Fyrsta þing SoH Forum, Reykjavík 2012, bar yfirskriftina „Re-setting the Compass – Creating a Landscape of Possibilities“ og var haldið í Reykjavík í september 2012. Staðsetningin var valin í ljósi þess markmiðs Reykjavíkurborgar að verða höfuðborg friðar á heimsvísu.
U.þ.b. 100 þátttakendur frá 30 löndum sóttu stofnþingið. Á meðal þátttakenda voru Federico Mayor, stofnandi Foundation for a Culture of Peace og fyrrverandi aðalframkvæmdastjóri UNESCO, og Dadi Janki, skólastjóri Brahma Kumaris.
Annað þing þessa vettvangs, sem ber yfirskriftina „The Power of Love and Compassion in Governance – Sharing Actions for Effective Change“ (Máttur kærleika og samhyggðar í stjórnarháttum og samstarf um aðgerðir til breytinga) verður haldið í Reykjavík 10.-12. apríl 2014. Þar verður leitað svara við því hvað þeir sem ákvarðanir taka á öllum stigum geti gert til að tryggja að mannleg grunngildi séu lögð til grundvallar í stjórnun og forystu.
Um allan heim er leitað framsækinna hugmynda sem nýtast ekki síst í friðarstarfi og stjórnun, þar sem gildi eins og samhyggð og kærleikur eru höfð að leiðarljósi. Markmið þingsins er að styðja þessa þróun enn frekar og ein af ástæðum þess að þingið er haldið á Íslandi er að samkvæmt Global Peace Index (en stofnandi þess, Steve Killelea kemur á þingið frá Ástralíu) er Ísland friðsælasta land í heimi.
Á þinginu verður fjallað um raunveruleg dæmi um verkefni sem byggja á grunngildum samfélagsins og tengjast ýmsum sviðum, t.d. menntun og félagsþjónustu, heilsugæslu, listum, menningu og andlegum fræðum, vísindum og umhverfisvernd, viðskipta- og hagfræði, stjórnmálum, friðarstarfi og átakastjórnun o.s.frv. Innblásturinn sem þau veita gefur þátttakendum tækifæri til að endurskoða eigið verklag við ákvarðanatöku og þingið getur í heild sinni leitt af sér nýja hugsun meðal leiðtoga heimsins sem byggir á stjórnun með grunngildi samfélagsins að leiðarljósi.
Yfirmenn alþjóðlegra samtaka eins og UNESCO, UNICEF og AIESEC, leiðtogar mikilvægra stofnana á heimsvísu á sviði samfélagslegra umbreytinga, fulltrúar verkefna á landsvísu, þekktir vísindamenn, viðskiptaleiðtogar, listamenn og andlegir fræðarar sitja þingið. Skipuleggjendurnir eiga von á að 230 leiðtogar frá 40 löndum komi til Reykjavíkur
Meðal viðburða má nefna hringborðsumræður og umræðuhópa um tilgreind málefni með þátttakendum sem hafa stuðlað að raunverulegum breytingum á umhverfi sínu, og samræður í minni hópum. Þingið er einnig vettvangur til að deila reynslu af hagnýtum aðferðum og áhrifamiklum dæmum um breytingar um heim allan þar sem ákvarðanir með grunngildi að leiðarljósi hafa haft bein áhrif. Þá verða óformlegar umræður í vingjarnlegu andrúmslofti sem hvetja til íhygli, auk íslenskra menningar- og listviðburða.