Tilraunaverkefnið Menntun núna í Breiðholti heldur ráðstefnu um íslenskunám og þátttöku innflytjenda í íslensku samfélagi þann 10. október kl. 13:00. Ráðstefnan fer fram í Gerðubergi. Tveimur dögum fyrr, þann 8. október, verður samskonar ráðstefna haldin á Ísafirði á vegum tilraunaverkefnisins Norðvesturkjördæmi í samstarfi við Fjölmenningarsetur.
Skráning á ráðstefnuna í Breiðholti fer fram með því að senda tölvupóst á menntun.nuna@reykjavik.is. Meðal gesta verða Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Ráðstefnustjóri verður Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri í Breiðholti.