153 milljónum króna verður varið til viðhalds og endurbóta á húsnæði, búnaði og skólalóð Breiðholtsskóla á þessu ári.
Til endurbóta á eldra húsnæði verður varið 70 milljónum króna, búnaður verður endurnýjaður fyrir allt að 20 milljónir króna og sundlaug skólans endurnýjuð fyrir 6 milljónir kr. Þá verður ráðist í fyrsta áfanga að endurgerð skólalóðar fyrir andvirði 50 milljóna króna á árinu.
Með þessum framkvæmdum er farið að niðurstöðum vinnuhóps sem gerði úttekt á ástandi skólans á árinu sem leið. Hópurinn lagði til framkvæmdir fyrir vel á annan milljarð króna og að jafnframt yrði ráðist í viðbyggingu við skólann. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 6. mars að taka þá tillögu upp við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.