Ráðhús Reykjavíkur og Höfði verða upplýst með bláum lit til að vekja athygli á málefnum einhverfra en alþjóðlegur dagur einhverfu er í dag 2. apríl.
Það er styrktarfélag barna með einhverfu sem stendur fyrir átakinu Blár apríl og verða fleiri byggingar lýstar upp með bláum lit um alla borg til að vekja athygli á málefninu.
Viðeigandi þjálfun getur skipt sköpum fyrir framtíð barna með einhverfu og einn liður í því er notkun sérkennslugangna í skólum. Um leið og vakin er athygli á einhverfu verður safnað fé til kaupa á sérkennslugögnum til stuðnings þessum hópi barna.
þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta hringt í styrktarlínu söfnunarátaksins í síma 902 – 1010.
Nánar um átakið á Blár apríl