Pétur Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
Pétur er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík í ný afstöðnum sveitarstjórnarkosningum og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi á síðasta kjörtímabili. Hann hefur jafnframt starfað á undanförnum árum við markaðsmál, ritstjórn, þýðingar og stundakennslu.
Pétur hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í dag.