Ný umferðarljós verða sett upp á Breiðholtsbraut á gatnamótum við Seljaskóga á morgun, þriðjudaginn 11. mars. Búnaður í stjórnkössum verður endurnýjaður til að gera tengingar við miðlæga stýringu umferðarljósa mögulega.
Vegna vinnu við tengingar verða ljósin gerð óvirk eftir að þungi morgunumferðar hefur gengið niður frá kl. 9 og unnið verður fram á kvöld við frágang. Ljósin verða gangsett strax og tengivinnu lýkur.
Til að gæta umferðaröryggis verður lokað fyrir bílaumferð inn á gatnamótin frá Arnarbakka og frá Seljabraut. Einnig eru allar vinstri beygjur á gatnamótunum bannaðar.
Umferð er beint um merktar hjáleiðir. Ein biðstöð strætó verður óvirk vegna lokunarinnar, en það er biðstöðin Arnarbakki á leið 12 í báðar áttir. Tilkynning verður hengd upp í biðskýlinu.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á töfum sem kunna að verða, en jafnframt brýnt fyrir ökumönnum að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir. Umferðarhraði við óvirk ljós takmarkast við 30 km/klst.