Óveruleg breyting á aðalskipulagi 2010-2030

Skipulagsmál

Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 hefur verið gerð, hún felst í túlkun sérstakra ákvæða um starfsemi, takmarkanir og frávik frá almennri skilgreiningu landnotkunar.

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 18. september 2014, tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Breytingin varðar túlkun á sérstökum ákvæðum um spilasali, veitingahús, gististaði og matvöruverslanir, sbr. töflur 1-4 í kaflanum Landnotkun, bls. 206-209. Með breytingunni er skerpt á orðalagi og undirstrikað að viðkomandi ákvæði eru almennt ekki afturvirk. Eftirfarandi setningu er bætt neðanmáls í viðkomandi töflur: „Ofangreind ákvæði eru ekki afturvirk. Mögulegt er að endurnýja leyfi um starfsemi sem var til staðar fyrir staðfestingu aðalskipulagsins, enda sé um óbreytta starfsemi að ræða í sama húsnæði og áður. Þetta á þó ekki við á svæðum þar sem tekið er skýrt fram í almennri skilgreiningu landnotkunar að viðkomandi starfsemi skuli vera víkjandi.“ Breytingin hefur ekki í för með sér breytingu á almennri stefnumörkun um viðkomandi starfsemi. 

Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14.