Örugg borg

Velferð Mannlíf

""

Borgarbúum gefst gott tækifæri til að sýna hug sinn í verki  gegn kynbundnu ofbeldi með því að mæta á Kjarvalsstaði næstkomandi þriðjudag og taka þátt í undirskrift og listgerningi. Athöfnin hefst kl. 17.

UN-Woman og Reykjavíkurborg efna til athafnar í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi 25. nóvember nk. klukkan 17 að Kjarvalsstöðum. Þar geta gestir stutt átakið með undirskrif sinni og með þátttöku í verki eftir listamanninn Ragnheiði Hörpu, Skínalda þar sem samspil ljóss, tóna og fólks verður í aðalhlutverki.

Í krafti fjöldans munu þátttakendur búa til ljósaspíralinn Skínöldu  en með honum verða send skilaboð út í samfélagið og heim allan um að breytingar séu mögulegar. Allir eru hvattir til að koma með ljósgjafa, t.d. vasaljós, snjallsíma eða kerti svo ljósið skíni sem skærast. Flutningstími verksins er 10 mínútur og verður boðið upp á kakó að því loknu. Reykjavíkurborg hvetur sem flesta til að mæta og styðja verkefnið.

Verkefni UN Women Öruggar borgir  leiðir saman borgaryfirvöld, lögreglu og frjáls félagasamtök til þess að auka öryggi kvenna, barna og unglinga í borgum.  Reykjavík hefur gengið til liðs við verkefnið og hefur heitið að vinna að bættu öryggi borgarbúa en nýlega leiddi könnun lögreglu í ljós að 77% kvenna upplifa óöryggi í miðborg Reykjavíkur að næturlagi.

Reykjavíkurborg er fjórða vestræna borgin sem tekur þátt en nú þegar hefur góður árangur náðst í Kaíró, Nýju Delí, Port Moresby og Kígalí.

Reykjavíkurborg skorar á borgarbúa að sýna samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi og taka þátt í að skapa skínandi stund með þátttöku í einstökum viðburði við Kjarvalsstaði næstkomandi þriðjudag.